Menningar- og íþróttaráð
Ár 2025, föstudaginn 23. maí var haldinn 8. fundur menningar- og íþróttaráðs. Fundurinn var haldinn í Hofi og hófst hann kl. 09:03. Eftirtalin voru viðstödd fundinn: Skúli Þór Helgason formaður, Sara Björg Sigurðardóttir, Stefán Pálsson, Kjartan Magnússon, Ásta Björg Björgvinsdóttir varamaður fyrir Aðalstein Hauk Sverrisson og Birna Hafstein varamaður fyrir Friðjón R. Friðjónsson. Jafnframt Jóna Hlíf Halldórsdóttir áheyrnarfulltrúi BÍL. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Steinþór Einarsson, Atli Steinn Árnason, Arnfríður S. Valdimarsdóttir, Helga Björnsdóttir og Auður Ásgrímsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Fram fer umræða um val á borgarlistamanni Reykjavíkur 2025. Lögð fram tilnefning um borgarlistamann Reykjavíkur sem útnefndur verður 17. júní 2025. Trúnaðarmál fram að útnefningu.
Samþykkt.
-
Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 22. maí 2025 ásamt drögum af samningi við Tjarnarbíó.
Frestað.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 22. maí 2025 ásamt drögum af samningi við Bíó Paradís.
Frestað.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofustjóra menningarborgar dags. 22. maí 2025 um valnefnd fyrir Borgarhátíðir Reykjavíkur 2026–2028. Trúnaðarmál MIR25050025
Samþykkt.
-
Lagt fram bréf skrifstofu stjórnsýslu dags. 21. maí 2025 um breytingu á stjórn Menningarsjóðsins Imagine Peace Reykjavík.
Samþykkt.
-kl. 9:49 víkur Arnfríður S. Valdimarsdóttir af fundi.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á Brokey um framtíðarsýn siglinga í Reykjavík.
Gunnar Sigurðsson formaður Brokeyjar og Guðjón Magnússon varaformaður taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey hefur um áratuga skeið verið einn helsti vettvangur siglingaíþrótta fyrir börn og unglinga á höfuðborgarsvæðinu. Brokey var fyrirmyndarfélag ÍSÍ 2024 og hefur í áratugi boðið þúsundum barna og ungmenna upp á gæðaþjálfun í siglingaíþróttum og lagt grunninn að lífslangri ástríðu fyrir sjónum og siglingum. Til þess að Brokey geti haldið áfram að vera ómissandi þáttur í íþróttastarfsemi Reykjavíkur er þörf á því að finna lausnir í uppbyggingu á aðstöðu fyrir félagið til framtíðar. Þökkum við Brokey fyrir góða og upplýsandi kynningu á starfsemi sinni.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn leggur áherslu á að efla íþrótta- og æskulýðsstarf og tryggja aðgengi að fjölbreyttum hreyfivalkostum óháð búsetu og efnahag. Sem eyland býr Ísland yfir ómetanlegum möguleikum til útivistar og íþróttaiðkunar á hafi sem má nýta mun betur í þágu heilsueflingar og forvarna. Siglingar stuðla að aukinni sjálfsstyrkingu, einbeitingu og ábyrgð og hafa mikið forvarnargildi fyrir börn og ungmenni. Fulltrúi Framsóknar fagnar fyrirmyndarstarfsemi Siglingaklúbbsins Brokey og telur mikilvægt að unnið sé að úrbótum í aðstöðu fyrir siglingastarfsemi í borginni. Með því væri stigið mikilvægt skref til að virkja nærumhverfið okkar og stuðla að fjölbreyttara og aðgengilegra íþróttastarfi fyrir alla.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Við þökkum fyrir góða kynningu á aðstöðumálum Siglingafélags Reykjavíkur, Brokeyjar. Mikilvægt er að bæta aðstöðu félagsins við Ingólfsgarð, í Gufunesi og í Skerjafirði enda er siglingastarfsemi blómleg og vaxandi í borginni. Ljóst er að fyrirhuguð Fossvogsbrú, sem hefur takmarkaðan tilgang, mun hafa mjög neikvæð áhrif á siglingar í Fossvogi og siglingaíþróttina í Reykjavík í heild.
-
Fram fer kynning á dýraþjónustu og meindýravörnum.
Þorkell Heiðarsson og Helena Gylfadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Þakkað er fyrir upplýsandi kynningu á Dýraþjónustu borgarinnar. Breytt ásýnd Húsdýragarðsins og þróun verkefna að dýravelferð skiptir máli fyrir mörg. Áhugavert hvað dýraþjónustan hefur verið leiðandi á landinu að samræma þjónustu við ólíkar dýrategundir samhliða að hlúa að veikum, særðum og dýrum í vanda. Mikilvægt er að Reykjavíkingar verði upplýstir um mikilvægi þess að skrá heimilisdýrin sín og greiði hófleg þjónustugjöld einmitt til að koma til móts við mikilvæga starfsemi DÝR.
-kl. 10:51 víkur Jóna Hlíf Halldórsdóttir af fundi.
-kl. 10:59 tekur Ingvar Sverrisson sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá 7. fundi menningar- og íþróttaráðs um styrk til Knattspyrnufélagsins Víkings.
Frestað.
-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir upplýsingum um fyrirkomulag samráðs milli menningar- og íþróttasviðs annarsvegar og umhverfis- og skipulagsviðs hins vegar vegna álagningar afnotagjalds fyrir viðburði á sviði menningar eða íþrótta í borginni. Hvernig fer það mat fram sem skipar viðburðum í mismunandi gjaldflokka og hvaða hlutlægu viðmið eru notuð.
Greinargerð fylgir með fyrirspurninni.
-
Óskað er eftir því að tillaga Sjálfstæðisflokksins um stuðning borgaryfirvalda við starf íþróttafulltrúa Leiknis í Efra Breiðholti, verði tekin til afgreiðslu á næsta fundi menningar- og íþróttaráðs. Tillagan var lögð fram á fundi ráðsins 11. apríl sl. en afgreiðslu frestað að ósk meirihlutans. Tillagan hefur ekki enn verið tekin fyrir þrátt fyrir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi óskað sérstaklega eftir því á síðasta fundi ráðsins. 9. maí. Í 7. grein samþykktar um menningar- og íþróttaráð kemur fram að sé afgreiðslu á tillögu frestað í ráðinu, skuli hún tekin fyrir á næsta fundi þess. Óskað er eftir því að samþykkt ráðsins sé fylgt í þessu máli sem öðrum. MIR25040006
Fundi slitið kl. 11:13
Skúli Helgason Kristinn Jón Ólafsson
Sara Björg Sigurðardóttir Stefán Pálsson
Kjartan Magnússon Birna Hafstein
Ásta Björg Björgvinsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð menningar- og íþróttaráðs frá 23. maí 2025