Mannréttindaráð - Fundur nr. 5

Mannréttindaráð

Ár 2025, fimmtudaginn 15. maí var haldinn 5. fundur mannréttindaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi, Borgarráði og hófst kl. 13.02. Fundinn sátu eftirfarandi fulltrúar: Sabine Leskopf, Ólöf Helga Jakobsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, Björn Gíslason og Friðjón R. Friðjónsson. Einnig sátu fundinn eftirtaldir fulltrúar öldungaráðs: Sigurður Ágúst Sigurðsson, Jóhann Birgisson, Viðar Eggertsson og Eva Kristín Hreinsdóttir. Einnig sat fundinn: Anna Kristinsdóttir. 
Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, dags. 9. maí 2025, um að Ástrún Björk Ágústsdóttir taki sæti sem varamaður í öldungaráði í stað Bessíar Jóhannsdóttur. MSS22060165

    Fylgigögn

  2. Fram fer kynning mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu á tölfræði Reykjavíkurborgar um ofbeldi og eldra fólk.

    Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22110176

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu á tölfræði um ofbeldi og eldra fólk. Slík tölfræði er mikilvægt innlegg til að efla umræðu og þekkingu sem eru nauðsynleg innan borgarkerfisins til að vinna gegn hvers kyns ofbeldi gagnvart þessum hópi. Telur ráðið að greining á kyni þolenda í tölfræði lögreglunnar sem og skilgreiningu á tengslum geranda við brotaþola geta bætt tölfræðina til muna. 

    Fylgigögn

  3. Fram fer umræða um helstu ályktanir á aðalfundi Landssambands eldri borgara sem fram fór þann 29. apríl sl. MSS25050055

    -    Kl. 14.20 víkja af fundinum Sigurður Ágúst Sigurðsson, Jóhann Birgisson, Viðar Eggertsson og Eva Kristín Hreinsdóttir.

    -    Kl. 14.30 taka sæti á fundinum áheyrnarfulltrúar ofbeldisvarnarmála og starfsfólk: Ásmundur Rúnar Gylfason og Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir. 

  4. Fram fer kynning á stöðu aðgerða í forvarnaráætlun barna og ungmenna 2024 -2026  sbr. aðgerð nr. 6 í aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi.

    Guðrún Halla Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24060082

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Forvarnir gegn ofbeldi barna og ungmenna eru lykilatriði í lýðheilsu samfélagsins. Mannréttindaráðið leggur mikla áherslu á að öll starfsemi og stefnumörkun Reykjavíkurborgar taki mið af þessari forvarnaáætlun.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu á verkefninu Öruggir skemmtistaðir og trúnaðarmerkt kynning lögreglu höfuðborgarsvæðisins um öryggi í miðborg.

    Guðný Bára Jónsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22020073

    Mannréttindaráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaráð þakkar góða kynningu á stöðu verkefnisins öruggir skemmtistaðir og öryggi í miðborg Reykjavíkur. Telur ráðið að samráðsfundir og heimsóknir á skemmtistaði vera lykil að því að tryggja að þeim markmiðum sé náð sem samkomulagið er byggt á, bæði varðandi þekkingu og útfærslu þeirra.

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 13. maí 2025, um skil starfshóps um kortlagningu aðgerða gegn ofbeldi. MSS25030128 

    Fylgigögn

  7. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi fyrirspurn:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í mannréttindaráði óska eftir upplýsingum um hvaða viðmið, hvort sem þau eru hlutlæg eða huglæg, ráða því hvaða hagsmunasamtökum er boðið sæti í ráðinu. Jafnframt er óskað eftir rökstuðningi fyrir því af hverju þeim samtökum sem nú eiga sæti í ráðinu var boðið að taka þátt.

    Greinargerð fylgir fyrirspurninni. MSS25050082

    Fylgigögn

Fundi slitið kl.16.04

Sabine Leskopf Geirdís Hanna Kristjánsdóttir

Ólöf Helga Jakobsdóttir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

Magnea Gná Jóhannsdóttir Friðjón R. Friðjónsson

Björn Gíslason

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð mannréttindaráðs frá 15. maí 2025