Forsætisnefnd
Ár 2024, föstudaginn 17. janúar, var haldinn 351. fundur forsætisnefndar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10:05. Viðstödd voru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Árelía Eydís Guðmundsdóttir, og Sabine Leskopf. Eftirtaldir áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum: Alexandra Briem og Helga Þórðardóttir. Eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Líf Magneudóttir, Marta Guðjónsdóttir og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Eftirtaldir starfsmenn og embættismenn sátu fundinn: Helga Björk Laxdal, Bjarni Þóroddsson og Ólöf Magnúsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram drög að dagskrá fundar borgarstjórnar 21. janúar 2025.
Forsætisnefnd óskar eftir að eftirtalin mál verði tekin á dagskrá sem sérstakir dagskrárliðir með vísan til samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:a) Endurskoðuð aðgerðaáætlun með stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, sbr. 10. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. janúar 2025
b)Umræða um flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins)
c) Ályktunartillaga borgarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar um bætta upplýsingagjöf til húsnæðiskaupenda á Íslandi
d) Umræða um hvernig leysa á mál vöruskemmunnar við Álfabakka (að beiðni borgarfulltrúa Flokks fólksins).
e) Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að kalla eftir ábendingum borgarbúa varðandi þjónustu borgarinnar
f) Umræða um bílastæði í borginni (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins )
g) Kosning í borgarráð
h) Kosning í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð
i) Kosning í stafrænt ráð
j) Kosning í umhverfis- og skipulagsráð
k) Kosning í velferðarráð
l) Kosning í aðgengis- og samráðsnefnd í málefnum fatlaðs fólks
m) Kosning í heilbrigðisnefnd
n) Kosning í innkaupa- og framkvæmdaráð
o) Kosning í Íbúaráð Breiðholts
p) Kosning í íbúaráð Kjalarness
r) Kosning í íbúaráð Vesturbæjar MSS25010046 -
Lagt fram erindi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, dags. 16. desember 2024, varðandi aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn ofbeldi 2025 -2028, ásamt fylgiskjölum.
Vísað til borgarstjórnar.Halldóra Dýrleifar Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24060082
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á jólaborginni 2024.
Eva Bergþóra Guðbergsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS24090135
-
Lagt fram að nýju erindi mannréttinda- og lýðræðisskirfstofu, dags. 4. október 2024, varðandi reglur um borgaraþing, ásamt fylgiskjölum, sbr. 3. lið fundargerðar forsætisnefndar frá 15. nóvember 2024
Vísað til borgarstjórnar MSS24040172Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 15. janúar 2024, þar sem tilkynnt er um tilhögun fæðingarorlofs Elísabetar Guðrúnar Jónsdóttur varaborgarfulltrúa Pírata. MSS25010104
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fund borgarstjórnar og reykjavíkurráðs ungmenna. MSS25010091
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 15. janúar 2025, varðandi fjárframlag Reykjavíkurborgar til stjórnmálasamtaka árið 2025, ásamt fylgigögnum. MSS22060123
Fylgigögn
-
Fram fer umræða um fund borgarstjórnar 7. janúar 2025 MSS25010119
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, varðandi beiðni Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa Samfylkingar um lausn frá störfum til loka kjörtímabils.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25010116Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, varðandi beiðni Kolbrúnar Baldursdóttur borgarfulltrúa um tímabundinni lausn frá störfum til 18. febrúar 2025.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25010117Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, varðandi beiðni Rögnu Sigurðardóttur varaborgarfulltrúa Samfylkingar um lausn frá störfum til loka kjörtímabils.
Vísað til borgarstjórnar. MSS25010118Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, þar sem tilkynnt er að Helga Þórðardóttir taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd í stað Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og að Einar Sveinbjörn Guðmundsson verði varaáheyrnarfulltrúi í stað Helgu. MSS22060040
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, þar sem tilkynnt er að Helga Þórðardóttir taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í borgarráði í stað Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur og að Einar Sveinbjörn Guðmundsson taki sæti sem áheyrnarfulltrúi til vara í stað Helgu. MSS22060043
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. janúar 2025, þar sem kemur fram að Einar Sveinbjörn Guðmundsson taki sæti sem áheyrnarfulltrúi í umhverfis- og skipulagsráði í stað Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur. MSS22060046
Fylgigögn
Fundi slitið kl 11:28
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Líf Magneudóttir Marta Guðjónsdóttir
Sabine Leskopf
PDF útgáfa fundargerðar
Forsætisnefnd 17.1.2025 - Prentvæn útgáfa