Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 328

Endurskoðunarnefnd

Ár 2025, mánudaginn 19. maí var haldinn 328. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Guðrúnartúni 1 og hófst kl. 11:08. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum: Lárus Finnbogason, Einar S. Hálfdánarson, Sigrún Guðmundsdóttir og Sunna Jóhannsdóttir. Einnig tók sæti á fundinum Ingunn Ólafsdóttir, starfandi innri endurskoðandi. 

Fundarritari var Kristín Henley Vilhjálmsdóttir. 

Þetta gerðist:

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram til kynningar trúnaðarmerkt drög að innri endurskoðunaráætlun samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 2025-2026, dags. 19.05.2025.  IER24080014

    Ingunn Ólafsdóttir og Guðjón Hlynur Guðmundsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.

    Samþykkt og vísað til stjórnar. 
     

  2. Fram fer kynning á úttekt Innri endurskoðunar og ráðgjafar á hönnun og framkvæmdum við leikskólann Brákarborg og lögð fram trúnaðarmerkt skýrsludrög dags. 19.05.2025. IER24080017

    Ingunn Ólafsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Samþykkt að vísa til borgarráðs. 
     

  3. Lögð fram til kynningar drög að samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar tímabilið 1. janúar til 31. mars 2025. IER25010013

    Snorri Hafsteinn Þorkelsson, Bryndís María Leifsdóttir og Hrafnhildur Fanngeirsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Lögð fram svohljóðandi bókun endurskoðunarnefndar: 
    Endurskoðunarnefnd hefur fengið kynningu á samandregnum árshlutareikningi samstæðu Orkuveitunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2025. Endurskoðunarnefnd þakkar greinargóða kynningu og telur að árshlutareikningurinn sé tilbúinn til framlagningar í stjórn Orkuveitunnar. 
     

  4. Lagt fram til upplýsingar bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til Reykjavíkurborgar varðandi yfirferð fjárhagsáætlunar, dags. 08.04.2025. IER25040009

     

    Fylgigögn

  5. Fram fer umræða um breytingar á samþykkt fyrir Innri endurskoðun og ráðgjöf og innri endurskoðanda sem samþykkt var af borgarstjórn 15.06.2021. IER25030009

  6. Fram fer umræða um sjálfsmat endurskoðunarnefndar sem lagt verður fyrir í ár. IER25050006

Fundi slitið kl. 14:02

Lárus Finnbogason Einar S. Hálfdánarson

Sigrún Guðmundsdóttir Sunna Jóhannsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð endurskoðunarnefndar frá 19. maí 2025