Borgarráð
Ár 2025, fimmtudaginn 5. júní, var haldinn 5784. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:00. Viðstödd voru, auk borgarstjóra sem tók sæti á fundinum með rafrænum hætti, Líf Magneudóttir, Alexandra Briem, Hildur Björnsdóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 2. júní 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við endurgerð leikskólans Hlíð-Sólhlíð við Engihlíð 6, ásamt fylgiskjölum. Heildarkostnaðaráætlun er 640 m.kr.
- Kl. 9:02 tekur Einar Þorsteinsson sæti á fundinum.
Samþykkt.
Ámundi V. Brynjólfsson og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25050528
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er fagnaðarefni að ráðist sé í heildarendurskipulagningu og endurgerð á leikskólahúsnæðinu Hlíð-Sólhlíð til að mæta nútímakröfum og bæta aðgengið svo um munar.
Fylgigögn
-
Lögð fram skipulagslýsing, dags. maí 2025, vegna nýs deiliskipulags Heiðmerkur.
Ámundi V. Brynjólfsson og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24030262
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Umræðan um Heiðmörk endurspeglar mikilvægi þess að sætta sjónarmið um nauðsyn þess að tryggja örugga vernd vatnsbóla höfuðborgarsvæðisns annars vegar og hins vegar gott aðgengi að stærsta og vinsælasta útivistarsvæði borgarbúa þar sem er blómlegasti skógur höfuðborgarsvæðisins. Með skipulagslýsingunni er staðfest að fulltrúar Reykjavíkurborgar, Veitna, Orkuveitu Reykjavíkur, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlitsins munu skipa vinnuhóp sem mun leiða vinnu við nýtt deiliskipulag fyrir Heiðmörk. Meginmarkmiðin eru alveg skýr, að tryggja öryggi og óbreytt gæði grunnvatns til langrar framtíðar, m.a. með því að draga úr umferð ökutækja á grannsvæði vatnsverndar og að Heiðmörk nýtist áfram til fjölbreyttrar útivistar fyrir alla aldurshópa samhliða því að vera fjölskrúðugt skógræktarsvæði.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja mikilvægt að við mótun nýs deiliskipulags fyrir Heiðmörk verði lögð rík áhersla á öruggt og greiðfært aðgengi almennings að þessu mikilvæga og rótgróna útivistarsvæði. Fulltrúarnir telja hugmyndir Veitna um umfangsmiklar takmarkanir á umferð um Heiðmerkursvæðið vera of íþyngjandi, þær séu líklegar til að skerða verulega aðgengi almennings og draga úr möguleikum íbúa til útivistar og afnota af svæðinu. Ekki liggja fyrir gögn sem sýna fram á að mengunarhætta á vatnsverndarsvæðinu hafi aukist á undanförnum árum. Þvert á móti bendir margt til þess að sú hætta sé fremur á undanhaldi. Þá hafa engin atvik orðið á undanförnum árum sem truflað hafa vatnsvinnslu eða haft neikvæð áhrif á vatnsgæði á svæðinu. Sjálfstæðismenn telja Veitur ekki hafa gætt meðalhófs í fyrirliggjandi tillögum og telja rétt að kannaðar verði mildari og markvissari leiðir við yfirstandandi deiliskipulagsvinnu, sem tryggja bæði vatnsvernd og áframhaldandi aðgengi íbúa höfuðborgarsvæðisins að Heiðmörk.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er leitt að meirihlutinn hafi hafnað tillögu Framsóknar í borgarstjórn um að stofna stýrihóp um mótun framtíðarsýnar fyrir Heiðmörk. Mikilvægt verkefni Veitna við að tryggja aukna vernd vatnsbóla verður að ganga greiðlega fyrir sig. Það er afar mikilvægt að tryggja aðkomu kjörinna fulltrúa að ákvörðunum sem snerta svo mikilvæga hagsmuni almennings bæði hvað varðar vatnsvernd og lýðheilsu enda eru um 500 þúsund heimsóknir í Heiðmörk á ári. Kröfur Veitna um að banna bílaumferð gætu falið í sér að íbúar þyrftu að ganga frá Suðurlandsvegi, 3-4 kílómetra, áður en þeir komast í skóginn. Það myndi útiloka meginþorra þeirra sem heimsækja Heiðmörk. Stýrihópurinn gæti leitt lýðræðislegt samtal við hagaðila og almenning, látið vinna áhættugreiningu, lýðheilsumat og sviðsmyndir um fjárfestingu í vatnsöflun á nýjum svæðum til þess að koma í veg fyrir takmarkað aðgengi að Heiðmörk, nýjar aðgangsstýringar eða lausnir sem tryggja bæði sjónarmið vatnsverndar og útivistar.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 21. maí 2025, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. maí 2025, á tillögu að breytingum á leiðakerfi og áætlun strætóleiða nr. 4, 25 og 29, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt umhverfis- og skiplagsráðs varðandi breytingar á leiðakerfi og áætlun strætóleiða nr. 25 og 29 er samþykkt.Ámundi V. Brynjólfsson og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25040300
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Góðar almenningssamgöngur eru mikilvægar, í samræmi við þarfir og notkun á hverjum stað. Eins skiptir það máli að endurskoða reglulega þjónustu í samræmi við þarfir og óskir. Reynslan af leiðum 25 og 29 er að þörf sé á aukningu á tíðni og hefur ungmennaráð Kjalarness vakið máls á því. Nú stendur til að auka töluvert við þjónustustig almenningssamgangna í borginni með innleiðingu nýs leiðakerfis og því við hæfi að auka tíðni þessara leiða líka. Þessi aukning samræmist vel stefnu borgarinnar og kemur til móts við óskir íbúa og fulltrúa í ungmennaráði Kjalarness. Leið 4 mun breytast á þann veg að hún aki Kringlumýrabraut í stað þess að fara um Háaleitsbraut og Miklubraut, það er til þess að nýta sérrými sem sett verður upp á Kringlumýrarbraut, sem er mikilvægt til að bæta ferðatíma og gera það mögulegt að fylgja tímaáætlun.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fyrirhugaðar breytingar á leið 25 og 29 eru til bóta og því samþykktar af fulltrúum Sjálfstæðisflokks. Fyrirhuguð breyting á leið 4, Skúlagata-Mjódd, sem afgreidd var í umhverfis- og skipulagsráði á dögunum, mun hins vegar hafa í för með sér verulega skerðingu á strætisvagnaþjónustu í Múlahverfi. Við breytinguna mun leiðin hætta að þjóna tíu biðstöðvum í þessu fjölsótta hverfi. Í hverfinu eru margir fjölmennir vinnustaðir, vinsælar verslanir og Fjölbrautaskólinn við Ármúla svo eitthvað sé nefnt.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. júní 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki hjálagða stafræna útgáfa húsnæðisáætlunar Reykjavíkur, sem hefur nú verið skilað til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í samræmi við 3. gr. reglugerðar 1248/2018 um húsnæðisáætlanir (sbr. einnig 14 gr. laga nr. 44/1998 m.s.br.). Einnig er lögð fram á ný húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2025- 2034 sem samþykkt var í borgarstjórn 3. júní sl. Stafræn útgáfa áætlunarinnar byggir í öllu á sömu forsendum og markmiðum og samþykkt áætlun borgarinnar, en er sett fram samkvæmt forskrift og stöðlum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og miðar m.a. að því að auðvelda samanburð á húsnæðisáætlunum milli sveitarfélaga.
Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Oddrún Helga Oddsdóttir og Kamma Thordarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS24080037
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja húsnæðisstefnu Samfylkingar og fylgitungla hafa beðið algjört skipbrot. Viðvarandi og uppsafnaðan húsnæðisskort borgarinnar megi að miklu leyti rekja til lóðaskortsstefnu meirihlutans og ofurþéttingar þar sem öll áhersla er á þung, dimm og háreist fjölbýli. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka að svo svara megi fyrirséðri þörf á húsnæðismarkaði til næstu ára verður nauðsynlegt að brjóta nýtt land og færa út vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins. Skipuleggja þurfi ný hverfi á mannlegum skala, þar sem tryggður er mildari þéttleiki, lágreistari byggð og fjölbreyttari valkostir. Fulltrúarnir telja það markmið húsnæðisáætlunar borgarinnar að 35% nýrrar uppbyggingar verði niðurgreitt húsnæði, fela í sér óæskilega og ósjálfbæra nálgun á húsnæðismarkaðinn. Mun fremur þurfi að skapa heilbrigðan húsnæðismarkað, þar sem framboð er nægt og fólk á þess kost að eignast eigið húsnæði í fyllingu tímans. Þá vekja fulltrúarnir athygli á því að árið 2024 voru aðeins fullkláraðar 989 íbúðir í Reykjavík þrátt fyrir loforð um uppbyggingu 2.000 íbúða árlega.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 2. júní 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að veita skrifstofu borgarstjóra og borgarritara heimild til að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf., kt. 650619-0130, til viðræðna um gerð samnings um tímabundin afnot Taylors Tivoli Iceland ehf. af Miðbakka, Geirsgötu 15, í þeim tilgangi að Taylors Tivoli Iceland setji þar upp og reki parísarhjól á svæðinu í sumar. Borgarstjóra verði veitt heimild til þess að undirrita samninginn.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Oddrún Helga Oddsdóttir og Kamma Thordarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25050146
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð samþykkir að veita verkefnateymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara heimild til að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um gerð samnings um tímabundin afnot Taylors Tivoli Iceland ehf. af Miðbakka. Sett er inn krafa um ókeypis aðgang að hjólinu fyrir almenning á 17. júní og menningarnótt, þá er einnig áhersla á að bjóða skólahópum afsláttarverð og að bjóða fólki með fjölbreyttar aðgengisþarfir í morgunferðir þeim að kostnaðarlausu í samstarfi við borgina.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 3. júní 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki makaskiptasamning vegna lóðarskika við Hádegismóa 6, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Oddrún Helga Oddsdóttir og Kamma Thordarson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25010126
- Kl. 9:25 tekur Ebba Schram sæti á fundinum.
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. júní 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu matsnefndar um að hafna stofnframlagi frá Reykjavíkurborg til Arcur ehf. vegna kaupa 195 leiguíbúða; kaupáætlun 2025 Hlíðarhorn, áætlað stofnvirði 19.972.487.000 kr. og 12% stofnframlag 2.396.698.440 kr. Ofangreind tillaga um höfnun á stofnframlagi var samþykkt af matsnefnd vegna veitingu stofnframlaga 30. maí 2025.
Samþykkt.
Hörður Hilmarsson, Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Óli Jón Hertervig og Oddrún Helga Oddsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25010056
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. júní 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu matsnefndar um stofnframlag frá Reykjavíkurborg til Grunnstoða ehf. vegna kaupa 148 leiguíbúða; nýbygging Nauthólsvegi 87, reitur C, áætlað stofnvirði 5.704.558.300 kr. og 12% Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu matsnefndar um stofnframlag frá Reykjavíkurborg til Grunnstoða ehf. vegna kaupa 148 leiguíbúða; nýbygging Nauthólsvegi 87, reitur C, áætlað stofnvirði 5.704.558.300 kr. og 12% stofnframlag 684.546.996 kr. Ofangreind tillaga var samþykkt af matsnefnd vegna veitingu stofnframlaga 30. maí 2025.stofnframlag 684.546.996 kr. Ofangreind tillaga var samþykkt af matsnefnd vegna veitingu stofnframlaga 30. maí 2025.
Samþykkt.
Hörður Hilmarsson, Erik Tryggvi Striz Bjarnason Óli Jón Hertervig og Oddrún Helga Oddsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25010056
Fylgigögn
-
Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 3. júní 2025, að viðaukum við fjárhagsætlun Reykjavíkurborgar 2025. Greinargerðir fylgja tillögunum.
Vísað til borgarstjórnar.Hörður Hilmarsson, Erik Tryggvi Striz Bjarnason og Óli Jón Hertervig taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25010024
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks vekja athygli á því að söluhagnaður vegna Perlunnar verður að fullu bókfærður á árinu 2025, jafnvel þó greiðslur berist ekki að fullu fyrr en árið 2039, að 14 árum liðnum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks ítreka alvarlegar athugasemdir við greiðslufyrirkomulag í kaupsamningi. Um er að ræða seljendalán á kjörum sem eiga sér enga hliðstæðu á markaði. Sérstaklega má velta því fyrir sér hvers vegna ekki er gerð krafa um hærri upphafsgreiðslu miðað við þau fjármögnunarhlutföll sem almennt standa til boða við fasteignakaup. Borgarráð hafði samþykkt lágmarksverð fyrir Perluna 3,5 milljarða króna, en samkvæmt kaupsamningi er kaupverðið greitt á 13 árum (engar greiðslur berast 2028 og 2029). Miðað við fjármögnunarkjör Reykjavíkurborgar má halda því fram að í reynd sé um verulegan afslátt af kaupverði að ræða.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning á eign Reykjavíkurborgar að Sóleyjargötu 27, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS21120050
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki húsaleigusamning til fimm ára vegna Tryggvagötu 19, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25010050
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Hér er um að ræða leigusamning milli Ríkiseigna og Reykjavíkurborgar, en til þess að borgin geti farið í það að auglýsa eftir varanlegum leigutaka og rekstraraðila til að reka almenningsmarkað í húsnæðinu þarf að byrja á að ganga frá samkomulagi við ríkið.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning um lóð nr. 29A við Ránargötu, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25040066
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 30. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki leigusamning vegna húsnæðis við Rafstöðvarveg 7 og 9 undir leikskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25050065
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Byggður verður 6-7 deilda borgarrekinn leikskóli í hjarta Elliðaárdalsins og er ánægjulegt að nýta umrætt svæði fyrir börnin í borginni. Fulltrúar samstarfsflokkanna telja mikilvægt að unnið verði að deiliskipulagi fyrir dalinn þannig að það endurspegli skýrar þá sýn að hann sé fyrir almenning. Vegna framkvæmda og annarrar umsýslu sem leigusali þarf að hlutast til um í tengslum við hið leigða er kveðið á um að leigusali hafi kynnt sér samþykktar stefnur og stefnumarkandi áætlanir sem Reykjavíkurborg hefur sett sér, þar með talið Græna planið sem er heildarstefna Reykjavíkurborgar til ársins 2030, og skuldbindi sig til að tryggja að stefnum sé fylgt að því marki sem það á við hið leigða. Leigutaka er heimilt að rifta leigusamningi ef leigusali vanrækir skyldur sínar samkvæmt þessu ákvæði, enda hafi leigutaki veitt leigusala tækifæri til að bæta úr vanefnd. Það verður afar ánægjulegt að sjá borgarrekinn leikskóla rísa á þessu fallega svæði í Elliðaárdalnum þar sem aðstaða til fjölbreyttrar útivistar er með því besta sem gerist í borginni.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 16. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki húsaleigusamning vegna húsnæðis að Kirkjuteig 24, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25050032
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dgas. 20. maí 2025, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að ganga frá leigu á færanlegum stofum vegna framkvæmda við Laugarnes-, Laugalækjar- og Langholtsskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.Óli Jón Hertervig tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS25050034
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf menningar- og íþróttaráðs, dags. 23. maí 2025, um val á borgarlistamanni Reykjavíkur 2025. Trúnaður er um málið fram að útnefningu þann 17. júní nk.
Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MIR25030011
-
Fram fer umræða um málefni körfuknattleiksfélagsins Aþenu.
Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið. MSS25060017
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Félagið Aþena hefur haldið úti starfi í Breiðholti undanfarin ár með áherslu á æfingar og keppni stúlkna í körfubolta. Tekist hefur að fjölga iðkendum hjá Aþenu verulega á gildistíma þríhliða samnings við Aþenu og Leikni um rekstur mannvirkja í Austurbergi. Sá samningur er hins vegar frávik frá meginreglu um tvíhliða samninga og er þörf á breytingum m.a. til að tryggja betur samnýtingu mannvirkja, gott samstarf við haghafa í hverfinu og uppbyggileg samskipti auk þess sem fylgt verði lykilstefnum borgarinnar, ekki síst mannréttindastefnu og íþróttastefnu. Mikilvægt er að tryggja fjölbreytt framboð íþrótta og annars frístundastarfs ekki síst fyrir stúlkur í Breiðholti og er því unnið að því að finna lausn sem þjónar börnum í hverfinu ekki síst stúlkum, sem hafa fundið sér farveg í auknum mæli innan Aþenu á undanförnum árum.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að meirihlutinn hafi ekki lokið samningum við íþróttafélagið Aþenu áður en rekstrarsamningur við félagið rann út 31. maí sl. Leggja fulltrúarnir ríka áherslu á að samið verði við félagið hið allra fyrsta svo íþróttastarfið geti haldið áfram enda gríðarlegir hagsmunir undir fyrir iðkendur.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknar leggur fram svohljóðandi bókun:
Framsókn leggur áherslu á að ágreiningur á milli Aþenu og borgarinnar verði leystur strax enda hefur félagið sýnt góðan árangur í því að fjölga iðkendum í Breiðholti þar sem þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi hefur verið minni en í öðrum hverfum.
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. maí 2025, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 26. maí 2025 á tillögu um breytingar á reglum um leikskólaþjónustu, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25010095
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skóla- og frístundaráð samþykkti breytingar á reglum um leikskólaþjónustu. Breytingarnar fela í sér að almennur opnunartími leikskóla verður frá kl. 07:30 til 16:30. Fyrir breytinguna gafst foreldrum tækifæri til að sækja um dvalartíma fyrir börn sín til 17:00. Gert var ráð fyrir því að það væru einn til tveir leikskólar í hverju hverfi með opnunartíma frá 7:30-17:00 . Nú er staðan þannig að eingöngu eitt barn í Reykjavík nýtir þessa þjónustu. Í ljósi erfiðleika við mönnun á leikskólastiginu og í ljósi lítillar nýtingar á dvalartíma frá 7:30-17:00 telja samstarfsflokkarnir þetta gagnlega breytingu. Þess má geta að fulltrúar leikskólastjóra og starfsmanna fagna þessari breytingu því það hefur reynst skólum erfitt að halda úti starfsemi til kl.17:00 og fulltrúi foreldra í skóla- og frístundaráði setti sig ekki upp á móti styttingu á opnunartíma leikskóla í ljósi lítillar nýtingar og kostnaðar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks harma að dregið verði úr sveigjanlegum opnunartíma leikskóla fyrir fjölskyldur í Reykjavík. Fulltrúarnir minna á ákvörðun meirihlutans að skerða opnunartíma leikskóla á síðasta kjörtímabili þrátt fyrir að niðurstöður jafnréttismats mæltu gegn slíkri breytingu. Í ljós kom að áhyggjur sjálfstæðismanna reyndust á rökum reistar, en skertur opnunartími var talinn koma verst niður á vinnandi mæðrum, fólki í láglaunastörfum, fólki af erlendum uppruna og fólki með lítið bakland. Telja fulltrúarnir mikilvægt að leikskóla- og daggæslukerfið mæti fjölbreyttum þörfum og tryggi fjölskyldum sveigjanleika. Það er ekki síst eitt mikilvægasta jafnréttismálið sem sveitarstjórnarstigið fæst við.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. maí 2025, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 26. maí 2025 á tillögu um stofnun farteyma leikskóla, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25050082
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarfsflokkarnir fagna tillögu um stofnun farteyma til að mæta betur þörfum leikskólabarna með snemmtækri íhlutun. Tillagan felur í sér að stofnuð verði tvö farteymi með aðsetur í tveimur miðstöðvum, Suðurmiðstöð og Vesturmiðstöð, til reynslu, frá 1. júní 2025 og tekið til endurskoðunar árlega vegna barna sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda til að geta notið leikskólagöngu sem best. Ákveðið var að úthluta föstu fjármagni til leikskóla eftir fjölda barna í hverjum leikskóla til þess að koma betur til móts við þarfir leikskólabarna með snemmtækri íhlutun. Það átti að gefa leikskólum tækifæri til þess að ráða fagfólk til þess að sinna sértækum stuðningi innan leikskólans. Því miður hefur reynsla þessa árs sýnt að ekki hefur tekist að ráða fagfólk til starfsins í mjög mörgum leikskólum. Hlutfall leikskólakennara og uppeldismenntaðra starfsmanna í þeim leikskólum er afar lágt og því hefur reynst erfitt að koma til móts við þarfir einstaka barna. Reynslan hefur sýnt að það er auðveldara að fá leikskólasérkennara til starfa til þess að sinna ráðgjöf og handleiðslu í leikskólum ef ráðningarformið er ekki bundið við einstaka leikskóla. Þess vegna er lagt til að fara þá leið að ráða fagfólk í farteymi í reynsluskyni.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 13. maí 2025, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 12. maí 2025 á tillögu um breytingu á fjölda barna í leikskólanum Stakkaborg, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25010201
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. maí 2025, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 26. maí 2025 á endurnýjun samnings um samstarf Háskóla Íslands og skóla- og frístundasviðs á sviði starfsþróunar, rannsókna og nýsköpunar menntamála, ásamt fylgiskjölum. SFS25050077
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
- Kl. 10:40 víkur Helga Þórðardóttir af fundinum og Einar Sveinbjörn Guðmundsson tekur sæti.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Samstarf skóla- og frístundasviðs og Háskóla Íslands á sviði menntamála styðst við fagleg rök og getur haft í för með sér margvíslegan ávinning. Á hinn bóginn minna fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á mikilvægi þess að mælingar á árangri nemenda í grunnskólum borgarinnar sé samræmdur og að grunnskólakerfi borgarinnar taki mið af því að nemendur nái tilteknum árangri í kjarnafögum en sem dæmi gefa vísbendingar úr Pisa-könnunum til kynna að stór hluti nemenda við útskrift úr grunnskóla hafi ekki grunnfærni í lestri.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 28. maí 2025, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 26. maí 2025 á endurnýjun samnings við Myndlistaskólann í Reykjavík vegna almennra vetrarnámskeiða fyrir börn og ungmenni, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25030161
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 2. júní 2025, þar sem erindisbréf starfshóps um stefnu Reykjavíkurborgar um húsnæðismál sjálfstætt starfandi skóla er sent borgarráði til kynningar.
Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25060002
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. júní 2025, ásamt fylgiskjölum:
Lagt er til að borgarráð samþykki að taka tímabundið þátt í leigugreiðslum Hjallastefnunnar vegna leigu á viðbótarhúsnæði í Arnarhlíð fyrir starfsemi skóla Hjallastefnunnar. Þá er lagt til að borgarráð heimili þátttöku í viðbótarleigugjaldi sem bætist við grunnleigugjaldið. Heildarhlutur Reykjavíkurborgar vegna grunnleigugjalds og viðbótarleigugjalds er samtals á bilinu 59-69 m.kr. á þremur árum eða 1,6-1,9 m.kr. á mánuði. Grunnskólastarf í Arnarhlíð gefur Hjallastefnunni möguleika á að bæta við allt að 20 leikskólaplássum í Skógarhlíð. Þá er lagt til að skipaður verði starfshópur sem móti stefnu og geri tillögu að reglugerð um aðkomu Reykjavíkurborgar um húsnæðismál sjálfstætt starfandi leik- og grunnskóla.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Steinn Jóhannsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25050080
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 2. júní 2025, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 21. maí 2025 á tillögu um þjónustusamning við Spörvar líknarfélag Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Rannveig Einarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL25050030
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Borgarráð samþykkir samning um þjónustu við áfangaheimilið Draumasetrið. Mikið og gott starf er unnið í Draumasetrinu en samningurinn sem er hér samþykktur mun efla stuðning og styrkja faglegt starf. Stuðningurinn sem velferðarráð veitir felur í sér 15 milljóna króna fjárframlag árlega í þrjú ár. Um er að ræða mikilvægan hlekk í bataferli þeirra sem hafa lokið áfengis- og vímuefnameðferð.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 26. maí 2025, þar sem óskað er eftir borgarráð heimili sviðinu að hefja innleiðingu á nýjum samskiptamiðli fyrir innri samskipti og upplýsingamiðlun starfsfólks Reykjavíkur, ásamt fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar J. Sandholt og Inga Rós Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24100020
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 3. júní 2025, sbr. vísun stafræns ráðs frá 9. apríl 2025 á heimild til að halda áfram verkefninu gagnaverkefni 2025-2026 til borgarráðs, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktum fylgiskjölum.
Samþykkt.Óskar J. Sandholt og Inga Rós Gunnarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON22100022
Fylgigögn
-
Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-2471/2024.
- Kl. 12:00 víkur Einar Þorsteinsson af fundi og tekur sæti með rafrænum hætti. MSS24030146
-
Lagt fram bréf endurskoðunarnefndar, dags. 20. maí 2025, sbr. vísun endurskoðunarnefndar frá 19. maí 2025 á úttekt innri endurskoðunar og ráðgjafar á hönnun og framkvæmdum við leikskólann Brákarborg til borgarráðs, ásamt fylgiskjölum.
Ingunn Ólafsdóttir, Kristín Henley Vilhjálmsdóttir og Kristján Arinbjarnar taka sæti á fundinum undir þessum lið. Borgarfulltrúarnir Aðalsteinn Haukur Sverrisson, Andrea Helgadóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Helgi Áss Grétarsson, Kjartan Magnússon, Magnea Gná Jóhannsdóttir, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Stefán Pálsson og Þorvaldur Daníelsson taka einnig sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. IER25050009
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skýrsla innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar um Brákarborg varpar ljósi á marga ágalla í hönnunarferli leikskólans og við framkvæmd hans og síðan eftirliti með uppbyggingunni. Þá eru gerðar athugasemdir við verkferla og vinnulag eftirlitsaðila og hvernig tímaáætlunum og kostnaðarmati er háttað. Við þessu þarf að bregðast með margvíslegum hætti svo unnt sé að tryggja faglega og örugga framkvæmd byggingaverkefna borgarinnar, bæta verkferla og kostnaðareftirlit, auka gagnsæi og hámarka hagkvæmni og ábyrgð hönnuða og verktaka. Því leggur borgarráð því til við borgarstjóra að skipa umbótahóp sem vinnur í ljósi ábendinga innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar og á hann að skila tímasettri áætlun, áfangamati og tillögum um hvernig eftirfylgni skuli háttað með hönnun og framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum borgarinnar.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skýrsla Innri endurskoðunar og ráðgjafar um uppbyggingu leikskólans Brákarborgar gefur stjórnsýslu borgarinnar falleinkunn. Brákarborgarverkefnið er skýr birtingarmynd þess hvernig borgina skortir fullkomna kostnaðarvitund og aðhald þegar kemur að hönnunarferli bygginga. Tekið er undir með Innri endurskoðun og ráðgjöf að við uppbyggingu leikskóla væri skynsamlegra að nýta staðlaðar lausnir í auknum mæli enda slíkar lausnir bæði ódýrari og framkvæmdatími styttri. Skýrslan varpar ljósi á alvarleg mistök í undirbúningi, hönnun, framkvæmd og eftirliti með verkefninu. Sérstaka furðu vekur að framkvæmdir hafi verið hafnar án fullnægjandi burðarvirkisteikninga en það er sérlega alvarlegt í ljósi þess að byggingin hýsti lítil börn. Þá var ábyrgðarskipting óljós og augljósir hagsmunaárekstrar sköpuðust þegar verktaki sinnt jafnframt hlutverki byggingarstjóra. Málið varpar ekki síður ljósi á óábyrga meðför almannafjár en upphafleg kostnaðaráætlun vegna kaupa og breytinga á húsnæði og lóð gerði ráð fyrir 1.252 milljónum króna en að endingu nam heildarkostnaður í reynd 2.088 milljónum króna og er þá ekki allt talið. Það leiðir til þess að hvert leikskólapláss kostaði a.m.k. 17 milljónir króna. Ljóst er að gera þarf róttæktar umbætur á verkferlum og gæðakerfum umhverfis- og skipulagssviðs og tryggja stóraukið eftirlit með fjárfestingarverkefnum sem gjarnan fara langt umfram áætlanir. Mikilvægt er að stjórnsýsla borgarinnar endurspegli ábyrgð og fagmennsku en því hefur verið verulega ábótavant.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Úttekt innri endurskoðanda sýnir að það var fullt tilefni til þess að ráðast í ítarlega rannsókn á ástæðum þess að burðarvirki Brákarborgar stenst ekki kröfur. Framsókn gagnrýnir að fasteignin hafi verið keypt fyrir ríflega 600 milljónir án þess að fyrir lægi mat á gæðum burðarvirkis enda bendir innri endurskoðandi á að í raun lá fyrir að rífa þyrfti allt annað en burðarvirkið. Þá er afar leitt að sjá að stjórnsýsla í kringum verkefnið er í skötulíki, hönnunargögn og teikningar liggja ekki fyrir áður en hafist er handa við verkliði, sami aðili er verktaki og byggingarstjóri og byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi án þess að fullnægjandi gögn liggi fyrir. Forsaga málsins er að ákveðið var að fara í þessa endurgerð á húsinu til þess að sýna öðrum hvernig hægt er að endurnýja gömul hús með lágu kolefnisspori. Það er skoðun Framsóknar að borgin eigi ekki að standa í slíkri tilraunamennsku með tilheyrandi áhættu. Kostnaður við Brákarborg hækkaði um 67% frá upphaflegri kostnaðaráætlun og við bætist viðgerðarkostnaður upp á hundruð milljóna. Lokaniðurstaðan er að 100 barna leikskóli kostar líklega á endanum 2,5 milljarða sem er óviðunandi. Verst er þó að leikskólabörn og starfsfólk borgarinnar hafi verið í húsnæði sem ekki stenst kröfur.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 2. júní 2025, varðandi stöðu úttektar á samningaviðræðum um bensínstöðvalóðir í Reykjavík.
Ingunn Ólafsdóttir, Kristín Henley Vilhjálmsdóttir og Kristján Arinbjarnar taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER25060002
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Verkáætlun Innri endurskoðunar og ráðgjafar hefur breyst vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Gert er ráð fyrir að endurskoðuð skýrsludrög verði send að nýju til umsagnar í lok júní, frágangur lokaskýrslu fari fram í ágúst og að niðurstöður Innri endurskoðunar og ráðgjafar verði kynntar í endurskoðunarnefnd og borgarráði í september 2025.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýna harðlega þær tafir sem orðið hafa á skilum úttektar Innri endurskoðunar og ráðgjafar á samningaviðræðum um bensínstöðvalóðir. Mikilvægt er að skýrsla vegna úttektarinnar liggi fyrir hið fyrsta svo unnt verði að vinna úr niðurstöðunum.
Fylgigögn
-
Lagt fram bréf Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 2. júní 2025, varðandi tilkynningu um stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu við Álfabakka 2a í Suður-Mjódd.
Ingunn Ólafsdóttir, Kristín Henley Vilhjálmsdóttir og Kristján Arinbjarnar taka sæti á fundinum undir þessum lið. IER25010004
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 3. júní 2025:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að skipa starfshóp sem vinnur að umbótum í ljósi ábendinga innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar á hönnun, framkvæmdum og eftirliti á leikskólanum Brákarborg. Hópurinn skal skila tímasettri áætlun, áfangamati og tillögum um hvernig eftirfylgni skuli háttað með hönnun, framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar. Þrír starfsmenn skulu skipa hópinn og skal sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs skipa tvo fulltrúa (einn frá eignaskrifstofu) og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs skipar einn fulltrúa. Markmið með vinnu starfshópsins er að tryggja umbætur, aukna fagmennsku, öryggi og ábyrgð í framkvæmdum, draga úr kostnaðaráhættu, tryggja rekjanleika og bæta eftirlit og áhættumat með skilvirkara stjórnskipulagi.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að skipa starfshóp sem vinnur að umbótum í ljósi ábendinga innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar á hönnun, framkvæmdum og eftirliti á leikskólanum Brákarborg. Hópurinn skal skila tímasettri áætlun, áfangamati og tillögum um hvernig eftirfylgni skuli háttað með hönnun, framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum Reykjavíkurborgar. Hópinn skulu skipa fimm einstaklingar, þar af þrír starfsmenn borgarinnar, og skal sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs skipa tvo fulltrúa (einn frá eignaskrifstofu) og sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs skipa einn. Að auki skulu tveir utanaðkomandi ráðgjafar taka sæti í hópnum en þeir skulu hafa viðeigandi fagþekkingu sem nýtist við vinnu hópsins. Markmið með vinnu starfshópsins er að tryggja umbætur, aukna fagmennsku, öryggi og ábyrgð í framkvæmdum, draga úr kostnaðaráhættu, tryggja rekjanleika og bæta eftirlit og áhættumat með skilvirkara stjórnskipulagi.
Breytingartillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
Tillaga borgarstjóra er samþykkt.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfsætisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS25060015Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Því er beint til borgarstjóra að hafa í huga við gerð erindisbréfsins að sá utanaðkomandi ráðgjafi sem unnið hefur að skipulagsbreytingum á umhverfis- og skipulagssviði að undanförnu verði fenginn til þess að halda utan um starf þessa starfshóps.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gera athugasemdir við að starfshópurinn sé einungis skipaður starfsmönnum borgarinnar. Í ljósi þess að kerfi hafa tilhneigingu til að verja sjálf sig hefðu fulltrúarnir talið eðlilegra að í hópnum tækju jafnframt sæti utanaðkomandi ráðgjafar. Fulltrúarnir harma að tillaga þeirra þess efnis hafi verið felld af meirihlutanum.
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um aukin framlög með börnum í sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum, sbr. 33. lið fundargerðar borgarráðs frá 15. febrúar 2024.
Vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. MSS24020084Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um daggæslu á vinnustað, sbr. 54. lið fundargerðar borgarráðs frá 27. júní 2024. Einnig lögð fram umsögn skóla- og frístundasviðs, dags. 28. maí 2025.
Tillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS24060126Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um íslenska þjóðfánann, sbr. 37. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. apríl 2025. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 3. júní 2025.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja til að íslenski þjóðfáninn verði dreginn að húni við Ráðhús Reykjavíkur alla daga ársins. Undanskildir verði þó þeir átta rauðu dagar sem ekki eru fánadagar enda húsverðir ekki að störfum þá tilteknu daga.
Frestað. MSS25040020
Fylgigögn
-
Lagt fram svar Strætó bs., ódags., við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um Klapp, sbr. 22. lið fundargerðar borgarráðs frá 13. júní 2024. MSS24060062
Fylgigögn
-
Lagt fram svar fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 2. júní 2025, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um kjarasamninga við aðildarfélög KÍ, sbr. 45. lið fundargerðar borgarráðs frá 6. mars 2025. MSS25030013
Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs frá 28. maí og 4. júní 2025.
2. liður fundargerðarinnar frá 28. maí og 14. liður fundargerðarinnar frá 4. júní eru samþykktir. MSS25010030Fylgigögn
-
Lagðar fram fundargerðir innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 22. og 23. maí 2025. MSS25010008
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 21. maí 2025. MSS25010022
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9. maí 2025. MSS25010029
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem borist hafa borgarráði, alls 14 mál (MSS25010023, MSS25010023, MSS25040082, MSS25040082, MSS24050147, MSS25010043, MSS25010043, MSS25060004, MSS24100050, MSS25020032, MSS25010042, MSS25010042, MSS25040064, MSS25050038). MSS25050121
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS25060006
Fylgigögn
-
Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi tillögu:
Lagt er til að borgarráð samþykki að fela fjármála- og áhættustýringarsviði að undirbúa tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun Reykjavíkur þar sem álagningarhlutfall fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði lækki þannig að hækkun fasteignamats hafi ekki áhrif til hækkunar gagnvart íbúum og tekjur borgarsjóðs af fasteignagjöldum hækki ekki á milli áranna 2025 og 2026. Miða skal við að borgarstjórn taki tillöguna til afgreiðslu á fundi sínum 24. júní.
Greinargerð fylgir tillögunni. MSS25060034
Frestað.Fylgigögn
Fundi slitið kl. 12:45
Líf Magneudóttir Alexandra Briem
Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir Sanna Magdalena Mörtudottir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarstjórnar 05.06.2025 - Prentvæn útgáfa